dreamwork_

Are you motivated to build a great operational team where professionalism, dependability and high team spirit go hand in hand? Would you like to bring structure to a rapidly growing business while leading operations of critical infrastructure that international clients rely on? If you take pride in building a team that supports one another and delivers operational excellence, you could be our next Operations Manager.

atNorth is a leading Nordic data center company providing cost-effective, scalable high-density colocation and built-to-suit services to international industry-leading organizations across Iceland, Sweden, Finland, Denmark and Norway.

As part of its continued growth, atNorth is seeking an experienced Operations Manager to join the team in Iceland’s largest and rapidly growing datacenter in Reykjanesbær.

In this key leadership role, you will be responsible for the safe, reliable and efficient day-to-day operation of critical data center infrastructure. You will ensure this infrastructure meets ambitious availability requirements for high value and state of the art equipment. You will lead rapidly expanding teams of approximately 25 operational engineers, technicians and their team leads while driving operational excellence, infrastructure availability, safety and continuous improvement.

Key Responsibilities

  • Lead and develop a team of technicians and operational engineers
  • Ensure safe, reliable and efficient daily data center operations
  • Oversee maintenance activities across electrical, mechanical, cooling and critical infrastructure systems
  • Drive performance against operational targets, SLAs and KPIs
  • Maintain and improve operational procedures, workflows and documentation
  • Lead operational excellence and continuous improvement initiatives
  • Support safety, quality and compliance programs
  • Manage vendors, contractors and maintenance service providers
  • Support new builds, expansions and operational readiness activities
  • Act as the primary escalation point for operational incidents and challenges

Background & Qualifications

  • Strong leadership, communication and stakeholder management skills
  • Solid understanding of electrical and mechanical systems and operational resilience
  • Familiar to managing operational performance, vendors and budgets
  • Experience from industrial operations, mission-critical environments, utilities, telecommunications, energy or data centers is highly valued
  • Knowledge of safety, quality and compliance requirements within regulated environments
  • Degree in Engineering, Technical Management or a related field, or equivalent experience
  • Fluent in English

About the atNorth Culture

At atNorth, we believe sustainable success starts with our people. We foster an open, collaborative, and supportive environment where individuals are encouraged to take ownership, contribute ideas, and grow professionally. We value teamwork, trust, and transparency, and we recognize that great results are achieved when talented people work together toward a common goal.

By joining atNorth, you become part of a company that is helping build the sustainable digital infrastructure of the future while maintaining a strong commitment to its employees, customers, and communities. For more information about atNorth, please visit www.atnorth.com

Further Information

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is

_________________________________________________________________

Rekstrarstjóri – atNorth

Langar þig að byggja upp öflugt rekstrarteymi þar sem fagmennska, áreiðanleiki og góður liðsandi fara saman? Ef þú hefur metnað fyrir því að byggja upp sterkt teymi sem tryggir framúrskarandi rekstur gæti starf rekstrarstjóra hjá atNorth verið næsta skref fyrir þig.

Í takt við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins leitar atNorth að reynslumiklum rekstrarstjóra til að ganga til liðs við stærsta gagnaver landsins í Reykjanesbæ.

Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri mikilvægra innviða gagnaversins. Tryggja þarf að innviðirnir uppfylli strangar kröfur um rekstraröryggi og aðgengi, enda hýsa þeir verðmætan og háþróaðan búnað. Rekstrarstjóri mun leiða teymi sem telur um 25 tæknimenn og teymisstjóra, með áherslu á framúrskarandi rekstur, áreiðanleika innviða, öryggi og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa teymi tæknimanna og vaktar
  • Tryggja öruggan, áreiðanlegan og skilvirkan daglegan rekstur gagnaversins
  • Hafa yfirumsjón með viðhaldi raf-, véla-, kæli- og annarra mikilvægra innviðakerfa
  • Tryggja árangur í samræmi við rekstrarmarkmið, þjónustustig (SLA) og lykilmælikvarða (KPI)
  • Viðhalda og þróa verkferla, vinnulag og rekstrarskjöl
  • Leiða umbótastarf og vinna að auknum gæðum og skilvirkni í rekstri
  • Styðja við verkefni og verklag sem snúa að öryggi, gæðum og regluvörslu
  • Stýra samskiptum og samstarfi við birgja, verktaka og þjónustuaðila
  • Taka þátt í uppbyggingu og stækkun gagnaversins og tryggja rekstrarhæfni nýrra kerfa og innviða
  • Vera fyrsti tengiliður þegar upp koma alvarleg rekstraratvik eða áskoranir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sterk leiðtogahæfni ásamt góðri samskipta- og samstarfshæfni
  • Góður skilningur á raf- og vélbúnaðarkerfum og mikilvægi rekstraröryggis
  • Reynsla af stjórnun rekstrar, birgjum og fjárhagsáætlunum
  • Reynsla úr iðnaðarrekstri, rekstri mikilvægra innviða, veitustarfsemi, fjarskiptum, orkugeiranum eða gagnaverum er mikill kostur
  • Þekking á kröfum um öryggi, gæði og regluvörslu í rekstrarumhverfi þar sem ríkar kröfur eru gerðar
  • Háskólamenntun á sviði tæknifræði, verkfræði, iðnfræði eða sambærilegu sviði, eða sambærileg starfsreynsla
  • Gott vald á ensku

Menning og starfsumhverfi hjá atNorth

Hjá atNorth er lögð áhersla á að árangur byggist fyrst og fremst á mannauðnum. Fyrirtækið leggur metnað í að skapa opið, samstarfsmiðað og styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk er hvatt til að axla ábyrgð, koma með hugmyndir og þróast í starfi.

Samvinna, traust og gagnsæi eru mikilvæg gildi í menningu fyrirtækisins og lögð er áhersla á að góður árangur náist þegar hæfileikaríkt fólk vinnur saman að sameiginlegum markmiðum.

Með því að ganga til liðs við atNorth verður þú hluti af fyrirtæki sem tekur þátt í að byggja upp sjálfbæra stafræna innviði framtíðarinnar, með ríka áherslu á starfsfólk sitt, viðskiptavini og samfélagið. Frekari upplýsingar um atNorth má finna á www.atnorth.com

Nánari upplýsingar veitir

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is